Lyrics

Ég veit þú kemur í kvöld til mín
Þó kveðjan væri stutt í gær
Ég trúi ekki á orðin þín
Ef annað segja stjörnur tvær
Og þá mun allt verða eins og var
Sko, áður en þú veist, þú veist
Og þetta eina sem út af bar
Okkar á milli í friði leyst
Og seinna þegar tunglið
Hefur tölt um langan veg
Þá tölum við um drauminn
Sem við elskum þú og ég
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
Þó kveðjan væri stutt í gær
Ég trúi ekki á orðin þín
Ef annað segja stjörnur tvær
Og seinna þegar tunglið
Hefur tölt um langan veg
Þá tölum við um drauminn
Sem við elskum þú og ég
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
Þó kveðjan væri stutt í gær
Ég trúi ekki á orðin þín
Ef annað segja stjörnur tvær
Ef annað segja stjörnur tvær
Written by: Oddgeir Kristjánsson, Ási Í Bæ
instagramSharePathic_arrow_out