Top Songs By Áhöfnin á Halastjörnunni
Credits
AUSFÜHRENDE KÜNSTLER:INNEN
Áhöfnin á Halastjörnunni
Künstler:in
KOMPOSITION UND LIEDTEXT
Gylfi Ægisson
Songwriter:in
Lyrics
Ef að sorg þig þjáir og allt þér sýnist svart
skal ég lítið ráð þér gefa:
ef að vel þú gáir er alltaf eitthvað bjart
sem innst í þínum huga er geymt
Þú skalt hugsa um það og þér mun líða skár
það mun þínar sorgir sefa
þó að renni úr augum nokkur auka tár
eftir stund þú hefur þeim gleymt
Þó lífið sýnist svart
er samt svo ótal margt
sem læknað getur hjartasárin þín
og ef í huga þinn
þú hleypir birtu inn
í hjarta þér gleðin brátt áný aftur skín
Ef að sorg þig þjáir og allt þér sýnist svart
skaltu muna orðin mín:
hleyptu birtu inn í dimman huga þinn
og í hjarta þér gleðin aftur skín
Ef að sorg þig þjáir og allt þér sýnist svart
skal ég lítið ráð þér gefa:
ef að vel þú gáir er alltaf eitthvað bjart
sem vel í þínum huga er geymt
Þó lífið sýnist svart
er samt svo ótal margt
sem læknað getur hjartasárin þín
og ef í huga þinn
þú hleypir birtu inn
í hjarta þér gleðin brátt á ný aftur skín
Ef að sorg þig þjáir og allt þér sýnist svart
skaltu muna orðin mín:
hleyptu birtu inn í dimman huga þinn
og í hjarta þér gleðin aftur skín
Lyrics powered by www.musixmatch.com