Top Songs By Spilverk þjóðanna
Credits
AUSFÜHRENDE KÜNSTLER:INNEN
Spilverk þjóðanna
Künstler:in
KOMPOSITION UND LIEDTEXT
Spilverk þjóðanna
Songwriter:in
Lyrics
Í kjallaranum
Í kjallaranum
Honum Kela aldrei reikningslistin brást
Í kjallaranum
Í kjallaranum
En Keli lærði aldrei neitt um koss og meyjarást
Það var í ágúst hér austur á landi
Ég eitt sinn lenti á balli um kvöld
Og ein þar bar af ég blikkaði hana
Þó sæti' á bekkjunum ungmeyjafjöld
... 2 3 4 Sá er skotinn sjáðu nú
... 1 2 3 4 Haldið þið hann hafi það?
... 1 2 3 4 Farðu nú og flýttu þér
Hún var með dimmblá augu, dökka lokka
Dreyminn svip og yndisþokka
Ég féll í stafi' er ég fékk hana að sjá
Ég ákvað mig á augabragði
Óhræddur á gólfið lagði
Svo aðrir skyldu' ekki í hana ná
Á balli upp í sveit þau höfðu hist (sjúbídúbí-skúbdúbí)
Hýr og rjóð úti' í vornóttinni kysst (skúbídúbí-skúbdúbí)
Frá þeirri nóttu greina ég ei kann
En Hulda spann og hjartað brann
Hulda spann og hjartað brann
En aldrei fann hún unnustann
Handan við hafdjúpin bláu
Hugur minn dvelur hjá þér
Ég vil að þú komir og kyssir
Kvíðann úr hjarta mér
Hvítu mávar
Segið þið honum
Að mitt hjarta slái aðeins fyrir hann
Hvítu mávar
Segið þið honum
Að hann sé það allt sem mér í brjósti ann
Nú liggur vel á mér (braba-babababa)
Nú liggur vel á mér (braba-babababa) (og mér líka!)
Gott er að vera léttur í lund
Lofa skal hverja ánægjustund
(Einar)
Ég heiti Einsi kaldi úr Eyjunum
Og er inn undir hjá meyjunum
Og hvar sem ég um heiminn fer
Þær horfa á eftir mér
Tra la la, tra la la
Úti' á sjónum er mitt líf
Tra la la, tra la la
En í landi ást og víf
Og austur á fjörðum eitthvert kvöld
Ég álpaðist í töðugjöld
Ég bjargaði mér fyrir björgin dimm
Þær báðu mín Einar fimm
"Einar fimm drepur Daníel sex"
"En þessi djúphugsaði leikur, hann kom fyrir á skákmóti í Baden-Baden 1923"
Get ég nokkuð huggað þína hrelldu sál?
Hjartans vinur, segðu mér þitt leyndarmál
Ég sé það eru votar varir þínar
Æ, viltu ekki leggja þær við mínar?
Kata, kát með ljósa lokka
Lífsglöð, hefur yndisþokka
Kata, kann svo vel að rokka rokk
Alltaf meðan dansinn dunar
Djasslynd, Kata' um gólfið brunar
Elskar meira en margan grunar rokk
Það mest fyrir augun í bæ þessum ber
Að bærinn er fullur af útlendum her
Þeir spássera' og stálda um stræti og torg
Og stúlkurnar dufla við þá inni' á Borg
Og spyrji ég stúlku, hví sé hún svo sæl
Þá svarar hún manni um hæl
Það er draumur að vera með dáta
Og dansa fram á nótt
Og finna hve ljúft þeir láta
Þá líður stundin fljótt
Og almesta sælan er sú
Er hvísla þeir: "I love you"
Það er draumur að vera með dáta
Og dansa fram á nótt
Written by: Spilverk þjóðanna