Lyrics

Hún horfði um stund og hjartað í þér brann.
Og uppfrá því, þú geymir annan betri mann.
Nú gleymast þín tregatár og gömul sár.
Því hún er þín
Hún elskar þig heitt.
Það veit Guð.
Ástin er heimsins ljós.
Nú er allt eins og nýtt.
Nú er vor þó vetur ríki.
Það er sól þótt skýjað sé.
Því þú fannst þennan fjársjóð sem hún er.
Það dafnaði blóm í daufri skímunni.
Og síðan óma orð sem áður bjuggu í þögninni.
Svo fögur og innblásin,
Þú ert hugfanginn.
Því hún er þín
Hún elskar þig heitt.
Það veit Guð.
Ástin er lífsins ljós.
Nú er allt eins og nýtt.
Nú er vor þó vetur ríki.
Það er sól þó skýjað sé.
Því þú fannst þennan fjársjóð sem hún er.
Hvað er betra en að eiga augastein?
Og vita að inni innst er aðeins þessi ein.
Já hvað er betra en að eiga augastein.
Enginn er ríkari en þú.
Já þú.
Written by: Stefán Hilmarsson, Sveinbjörn Bjarki Jónsson, Toggi
instagramSharePathic_arrow_out