Upcoming Concerts for Hatari
Credits
AUSFÜHRENDE KÜNSTLER:INNEN
Hatari
Künstler:in
KOMPOSITION UND LIEDTEXT
Klemens Hannigan
Songwriter:in
Matthías Haraldsson
Songwriter:in
Einar Hrafn Stefánsson
Songwriter:in
Lyrics
Þrælar!
Gengilbeinur ræningja!
Tannlausu kjölturakkar!
Sníkjudýr!
Brauðmylsna!
Blindingjar og aumingjar!
Neytendur og klámhundar!
Grindhoruðu betlarar!
Marklausu peð!
Leiksoppar hrægamma!
Úrhrök!
Sameinist, ómagar, bak í bak og dansið
Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Áður en ég dey, skal ég dansa með þér
Skal ég dansa með þér
Varpið hulunni af hendi myrkrahöfðingjans!
Steypið af stóli þrælapískaranum og látið hann súpa eigið meðal!
Setjið hann undir ókið!
Sameinist, ómagar, og þrælið aldrei framar!
Bak í bak og dansið!
Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Áður en ég dey, skal ég dansa með þér
Ja, skal ég dansa með þér
Við deyjum öll, ég vil deyja með þér
Sama hvað, sama hvert ég fer
Við deyjum öll, þú munt deyja með mér
Áður en ég fer, áður en ég fer
Skal ég dansa með þér
Dansið!
Eða lútið óki kúgarans!
Áður en ég fer, áður en ég fer
Það er núna eða aldrei!
Dansið eða deyið!
Við deyjum öll, má ég dansa með þér?
Dansið!
Eða lútið óki kúgarans!
Áður en ég dey, skal ég dansa með þér
Það er núna eða aldrei!
Dansið eða deyið!
Við deyjum öll, má ég deyja með þér?
Dansið!
Eða lútið óki kúgarans!
Áður en ég fer, áður en ég fer
Skal ég dansa með þér
Lyrics powered by www.musixmatch.com