Lyrics

Ég þekkti eitt sinn drengstaula sem fölur var og fár
Með reytt og úfið hár, svo skyndibitablár
Ég sá oft þennan strákaula hann gugginn var og grár
Hann vældi þó að aldrei kæmu tár
Hann vildi aldrei borða neitt sem kraftinn gefið gat
Hann bara sat og sat og gaf í fæðu frat
En mamma hans og pabbi pældu allar leiðir út
En dýrið setti upp vandlætingarstút
Þá vítamín amma honum kraftinn allan gaf
Hún dældi honum ofan í hann þegar hann svaf
Stafrófinu af vítamínum fékk hún í hann blekkt
Með smurolíukönnu og stórri trekt
Hann er eins og klettur, það heyrist doj, oj, oj, oj, oj
Þegar hann dettur þá heyrist doj, oj, oj, oj, oj
Hann heitir Árni og segir doj, oj, oj, oj, oj
Hann er úr járni því heyrist doj-oj-oj-oj-oj
Og amma hans með blindu auga bissnessljósið sá
Gull á fingri og tá, sú gamla fór að spá
Að markaðssetja gemlinginn til gróða yrði gott
Og Íslands besta landkynningarplott
Nú æðir hann um heimsbyggðina í hasarfullum leik
Umbinn amma er hvergi smeyk, hann lemur alla í steik
Sem andlit okkar út á við hann talar skýrt og hátt
Hann gæti leikið He-man voða grátt
Já vítamín amma honum hormónana gaf
Hún dældi þeim ofan í hann þegar hann svaf
Stafrófinu af bætiefnum fékk hún í hann blekkt
Með smurolíukönnu og stórri trekt
Hann er eins og uxi, það heyrist doj, oj, oj, oj, oj
Þegar hann er hugsi, þá heyrist doj, oj, oj, oj, oj
Hann heitir Árni og segir doj, oj, oj, oj, oj
Hann er úr járni því heyrist doj, oj, oj, oj, oj
En vítamín amma honum bætiefnin gaf
Hún dældi þeim ofan í hann þegar hann svaf
Með bílhlössum af próteinfæðu fékk hún í hann blekkt
Með fægiskóflu og risastórri trekt
Hann er eins og klettur, það heyrist doj, oj, oj, oj, oj
Þegar hann dettur þá heyrist doj, oj, oj, oj, oj
Hann heitir Árni og segir doj, oj, oj, oj, oj
Hann er úr járni því heyrist doj-oj-oj-oj-oj
Written by: Bjartmar Guðlaugsson
instagramSharePathic_arrow_out