Lyrics

Það er kalt og konungur Vetur
kominn er úr fríi og setur
mark sitt óðum á mannlífið eins og endranær.
Sumum finnst sem fylgi honum þungi
pínu deyfð og ef til vill drungi.
En aðrir njóta hans nokkuð vel.
Gróðurinn í garðinum sefur
fram á vor og skammdegið hefur
tekið völdin og hjúpar allt ævintýrablæ.
En þó að dagarnir séu ekki langir
og frostið fari að bíta í kinn,
þá er ljósatíð í vændum.
Fyrr en varir koma aftur jól.
Og við stöldrum við.
Jól. Og við finnum frið.
Njótum þess að eiga náðarstund.
Já, jól. Það er lítið orð,
en merkara en mörg önnur hér á storð.
Þau tákna upphafið sem eitt sinn var.
Ég vil
Mönnum gefin var
gjöf sem við eigum enn.
Henni má enginn gleyma.
Heyri það allir menn.
Og því gefum við
gjafir í desember.
Ein fyrir andann
Ein fyrir lífið
Ein handa þér
Stjörnubjart og börnin á nálum
Spennan ríkir í öllum þeim sálum
Sem beðið hafa um langa hríð, eftir morgninum.
Hjörtun örar slá í hverju brjósti
Eftirvænting í húsinu
Því það er gleðitíð í vændum
Fyrr en varir koma aftur jól
Og við stöldrum við
Jól, og við finnum frið
Njótum þess að eiga náðarstund
Já Jól, það er lítið orð,
en merkara en mörg önnur hér á storð.
Sem marka upphafið sem eitt sinn var.
Ég vil
Mönnum gefin var
gjöf sem við eigum enn.
Henni má enginn gleyma.
Heyri það allir menn.
Og því gefum við
gjafir í desember.
Ein fyrir andann
Ein fyrir lífið
Ein handa þér
Ein gjöf fyrir lífið
Og ein handa þér
Written by: A. Cogliati, C. Guidetti, E. Ramazzotti, Stefán Hilmarsson
instagramSharePathic_arrow_out