Lyrics

Sunnudagsmorgunn og pabbi minn liggur í rúminu
Rauðeygður, rámur og risið á honum er lágt
Mamma er frammi, skuggaleg er hún í húminu
Það skilja svo fáir í heiminum hvað hún á bágt
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt
Sunnudagsmorgunn og pabbi minn rétt heldur rænunni
Starir í tómið og tortímir líter af kók
Hann röflar um eggið sem reynir að leiðbeina hænunni
Hann er í ranghverfum sokkum og líka í öfugri brók
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt
Sunnudagsmorgunn og hryggurinn þiðnar á borðinu
Bragðið af honum gleður víst engan í dag
Já, rétt væri að takaa panodilparið á orðinu
Og hlaupa til ömmu og kippa þar hungrinu í lag
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt
Það voru gestir hjá þeim í alla nótt
Í nótt
Í nótt
Í alla nótt
Written by: Bjartmar Guðlaugsson
instagramSharePathic_arrow_out