Top Songs By Bjartmar Guðlaugsson
Credits
AUSFÜHRENDE KÜNSTLER:INNEN
Bjartmar Guðlaugsson
Künstler:in
KOMPOSITION UND LIEDTEXT
Bjartmar Guðlaugsson
Songwriter:in
Lyrics
Þau byrjuðu saman í gagnfræðaskóla
Hann var hippi en hún var smart
Þau faðmleiddust alsæl um hæðir og hóla
Þau skynjuðu lífið og skildu svo margt
Vietnam bramboltið málaði allt svart
Lífið í heiminum var helvíti hart
En þau vildu rómaninn endurvekja á ný
Hann hafnaði öllum veraldar gæðum
Stórveldin þoldi' ekki, kúgun og stríð
Sem hugsuður fletti hann marxískum fræðum
Hún horfði' á hann lotningarfull og svo blíð
Hann utan við kerfið reykti sitt gras
Þoldi' ekki sundrungu, þoldi' ekki þras
Hann kommúnu stofnaði. Allt fyrir komandi tíð
Nú er hann orðinn kótilettukall
Nú er hann orðinn kótilettukall
Nú er hann orðinn meiri háttar kótilettukall
Þau svifu um loftið á skræpóttur skýi
Skreyttu sig blómum og boðuðu frið
Blótuðu ofbeldi byssum og blýi
Og gáfu' öllu lífi á jörðinni grið
Svo skyldi það verða um ókomin ár
Ást fyrir alla og óskorið hár
Í trú, von og kærleik þau tömdu sér indverskan sið
Nú dettur hann í það tvisvar á ári
Dreymandi starir þá glasbotninn í
Svo ruglar hann sínu vel snyrta hári
Í huganum gerist hann hippi á ný
Hann átti þó hugsjón, hann átti þó draum
En síðan kom staðreyndin helvíti aum
Og brauðstritið ruglaði' ann flippaðan kollinum í
Nú er hann orðinn kótilettukall
Þau byrjuðu saman í gagnfræðaskóla
Hann var hippi en hún var smart
Þau faðmleiddust alsæl um hæðir og hóla
Þau skynjuðu lífið og skildu svo margt
Vietnam bramboltið málaði allt svart
Lífið í heiminum var helvíti har
En þau vildu rómaninn endurvekja á ný
Written by: Bjartmar Guðlaugsson